Fótbolti

Messi tippar á Liverpool

NordicPhotos/GettyImages

Argentínumaðurinn Leo Messi hjá Barcelona tippar á að það verði Liverpool sem standi uppi sem sigurvegari í Meistaradeild Evrópu næsta vor.

Liverpool hefur fimm sinnum sigrað í keppninni, nú síðast árið 2005, en liðið komst líka í úrslit árið 2007. Messi hefur trú á því að enska liðið fari langt í ár ef marka má viðtal við hann á clubcall.com.

"Ef ég ætti að velja lið til að vinna Evrópukeppnina í ár myndi ég tippa á Liverpool. Þar eru frábærir leikmenn eins og Steven Gerrard, Fernando Torres, Dirk Kuyt og Javier Mascherano og það er erfitt að spila gegn þeim," sagði Messi.

Liverpool og Barcelona mættust í keppninni árið 2007 og þar hafði Liverpool betur.

"Það má vel vera að séu til lið sem spila fallegri fótbolta en Liverpool, en ég sé það alveg fyrir mér að þeir fari í úrslitaleikinn," sagði Argentínumaðurinn.

Liverpool mætir Atletico á heimavelli sínum í næstu viku, en Barcelona tekur á móti Basel. Bæði lið eru í nokkuð góðum málum í sínum riðlum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×