David Beckham segir litlu hafa munað að hann gengi til liðs við AC Milan í fyrra. Eftir að hafa yfirgefið Real Madrid vildi ítalska liðið fá Beckham sem ákvað á endanum að taka tilboði LA Galaxy í bandarísku MLS-deildinni.
„Ég var mjög nálægt því að skrifa undir við Milan," sagði Beckham. „Ég hugsaði mikið út í þetta en á endanum valdi ég Bandaríkin. AC Milan er mitt lið á Ítalíu og spilar alltaf skemmtilegan fótbolta. Mér líkar vel við landið og fer þangað oft í frí."