Búist við óbreyttum vöxtum á meginlandinu 3. september 2008 17:27 Mervyn King, bankastjóri Englandsbanka, ásamt Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands. Mynd/AFP
Stýrivaxtadagur er á evrusvæðinu og í Bretlandi á morgun. Sérfræðingar reikna flestir með óbreyttu vaxtastigi þrátt fyrir svartsýnar efnahagshorfur á næstunni. Stýrivextir á evrusvæðinu standa í 4,25 prósentum en í Bretlandi í fimm prósentum. Breska ríkisútvarpið segir menn tvístígandi innandyra hjá Englandsbanka enda aðstæður í bresku efnahagslífi afar slæmar í kjölfar alþjóðlegrar lánsfjárkreppu og verðhruns á fasteignamarkaði. Þá er atvinnuleysi í hæstu hæðum auk þess sem verðbólga mælist 4,4 prósent. Haft hefur verið eftir Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, að aðstæður sé þær verstu í 60 ár. Þrátt fyrir verðbólguna telja menn að Englandsbanki grípi í taumana til að koma í veg fyrir að samdráttarskeið gangi yfir og lækki stýrivexti fyrir árslok til að koma hjólum efnahagslífsins í gang. Því er sömuleiðis spáð að til að koma í veg fyrir að svartsýnisspár gangi eftir verði vaxtastigið keyrt niður í 3,5 prósent á næsta ári. Líkurnar á því aukast raunar eftir því sem olíu- og matvöruverð lækki.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp í hópuppsögnum Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira