Þrengir að breskum byggingafyrirtækjum 27. ágúst 2008 10:46 Hús til sölu. Mynd/AFP
Breska byggingafyrirtækið Taylor Wimpey tapaði 1,54 milljörðum punda, jafnvirði rúmra 235 milljarða íslenskra króna, á fyrstu sex mánuðum ársins. Fall á fasteigna- og lóðamarkaði í Bretlandi, Bandaríkjunum og Spáni skýrir tapreksturinn. Sé fasteignaverðmætið undanskilið afkomutölunum nam hagnaður fyrirtækisins 4,3 milljónum punda. Á sama tíma í fyrra nam hagnaður Taylor Wimpeys 119,8 milljónum punda. Talsverður munur er á milli landa hvar dró úr hagnaði. Þannig dróst hagnaður Taylor Wimpeys saman um 39 prósent í Bretlandi, um 63 prósent á Spáni og um 85 prósent í Bandaríkjunum. Fyrirtækið hefur brugðist við minnkandi afkomu með uppsögnum á starfsfólki og samninga við lánardrottna. Gengi hlutabréfa í fyrirtækinu féll um ellefu prósent á hlutabréfamarkaði í Lundúnum í Bretlandi í dag eftir að afkomutölurnar lágu fyrir. Gengi bréfa í bygginga- og fasteignafyrirtækjum hefur lækkað verulega upp á síðkastið í Bretlandi vegna þrenginga á íbúðamarkaði og minni eftirspurnar eftir húsnæði, að sögn breska ríkisútvarpsins.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fleiri fréttir Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira