Fótbolti

Meistaradeildin áfram á Stöð 2 Sporti

Elvar Geir Magnússon skrifar
Cristiano Ronaldo með Meistaradeildarbikarinn eftir sigur Manchester United á síðustu leiktíð.
Cristiano Ronaldo með Meistaradeildarbikarinn eftir sigur Manchester United á síðustu leiktíð.

Stöð 2 Sport hefur tryggt sér sýningarréttinn á Meistaradeild Evrópu og UEFA-bikarnum til ársins 2012. Þetta er tilkynnt á heimasíðu UEFA.

Stöð 2 Sport mun halda áfram að sinna Meistaradeildinni af stakri prýði og sýnir átta leiki í viku meðan riðlakeppnin fer fram. Þegar úrslitakeppnin hefst verða allir leikir sýndir.

Á heimasíðu UEFA er sagt að virkileg ánægja sé með þessa samninga enda hafi samstarfið við 365 miðla verið gott gegnum árin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×