Leikmennirnir tóku þessu vel 25. febrúar 2008 12:35
Guðmundur Guðmundsson segir að hann muni koma með einhverjar áherslubreytingar inn í íslenska landsliðið eftir að hann tók við því á ný eftir fjögurra ára hlé í dag. "Einar Þorvarðarson og Guðmundur Ingvarsson höfðu samband við mig undir lok síðustu viku og eftir að ljóst varð að þeir sem þeir höfðu rætt við áður höfðu ekki áhuga, ákvað ég að ræða við yfirmenn mína hjá Kaupþingi. Þeir sýndu mér skilning og eftir það ákvað ég að fara í frekari viðræður við HSÍ. Raunverulega lá ekki endanleg ákvörðun fyrir hjá mér í þessu fyrr en í gærkvöldi," sagði Guðmundur í samtali við Arnar Björnsson í hádegisviðtalinu á Stöð 2. "Ég ræddi við eina tvo leikmenn í landsliðinu því það er mikilvægt að þjálfari hafi gott bakland. Þeir tóku þessu vel og það var góð tilfinning að heyra þeirra sjónarmið," sagði Guðmundur, sem vildi ekkert tjá sig um það sem á undan gekk í þjálfaraleitinni hjá HSÍ. Guðmundur samdi við HSÍ fram yfir Ólympíuleika og stýrir liðinu í undankeppni Ólympíuleikanna í maí og svo verða leikir við Makedóna í sumar í forkeppni HM. "Ég verð að byrja strax að undirbúa mig og fara yfir síðustu keppni. Ég er ekki með mjög ólíkar hugmyndir og Alfreð. Það koma þó alltaf einhverjar áherslubreytingar með nýjum mönnum, " sagði Guðmundur. Hann hefur ekki ákveðið hvern hann fær sér til aðstoðar en segir niðurstöðu að vænta í því fljótlega.
Íslenski handboltinn Mest lesið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Enski boltinn Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Íslenski boltinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Barcelona búið að landa Gordon Enski boltinn Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Íslenski boltinn Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti Ederson nálgast Manchester United Enski boltinn Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Handbolti Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Handbolti Fleiri fréttir FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Sjá meira