Hagnaður Royal Bank of Scotland jókst um 18 prósent 28. febrúar 2008 09:26 Fyrir utan eitt útibúa Royal Bank of Scotland. Mynd/AFP
Royal Bank of Scotland, næststærsti banki Bretlandseyja, hagnaðist um 7,3 milljarða punda, jafnvirði um 950 milljarða íslenskra króna á síðasta ári samanborið við 6,2 milljarða í hitteðfyrra. Þetta er um 18 prósenta aukning á milli ára og því glöddust hluthafar eðlilega enda hefur lausafjárþurrðin og afskriftir vegna áhættusamra skuldabréfavafninga bitið í afkomutölur fjármálafyrirtækja víða um heim upp á síðkastið. Þar af nam rekstrarhagnaður bankans 10,3 milljörðum punda, sem er níu prósenta aukning frá fyrra ári. Tekjur námu 31,1 milljarði punda, sem er ellefu prósenta aukning frá í hitteðfyrra. Stjórn bankans hefur ákveðið að hækka arðgreiðslur sínar til hluthafa um 10 prósent og munu þær nema 32,3 pensum á hlut fyrir afkomuna í fyrra, að sögn breska blaðsins Financial Times.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Viðskipti erlent Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Viðskipti innlent Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Viðskipti innlent Fyrsti vinnudagurinn eftir frí og níu góð ráð Atvinnulíf Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Olís sektað um kvartmilljón vegna fullyrðinga um kolefnisjöfnun Neytendur Sátu alvarlega fundi um tómatsósu og guacamole Viðskipti innlent Góð ráð við slæmum þynnkudegi í vinnunni Atvinnulíf Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Fleiri fréttir Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Sjá meira