Rússar kjósa eftirmann Putins Óli Tynes skrifar 2. mars 2008 09:45
Rússar ganga að kjörborðinu í dag í forsetakosningum sem búist er við að leiði til þess að Vladimir Putin haldi áfram að stjórna landinu á bakvið tjöldin. Skoðanakannanir benda til þess að hinn 42 ára gamli Dmitry Medvedev vinni góðan sigur. Putin valdi Medvedev sjálfur til þess að taka við sér sem forseti. Sjálfur tekur hann við embætti forsætisráðherra. Sjötugur Moskvubúi sem Reuters fréttastofan ræddi við sagði að hann hefði kosið Medvedev vegna þess að hann væri ungur og gáfaður og myndi vinna vel með Putin. Húsbændurnir í Kreml leggja mikla áherslu á að þáttaka í kosningunum verði góð, til þess að Medvedev vinni sem glæsilegastan sigur. Stefnt er að því að þáttakan verði að minnsta kosti 70 prósent. Medvedev hefur ekki háð neina formlega kosningabaráttu. Hann hefur notið þess að miðstýrðir fjölmiðlarnir hampa honum mjög. Hann hefur kosið að ferðast um landið og skoða nýbyggingar og framkvæmdir, með herskara rússneskra fjölmiðlamanna á hælum sér. Hann hefur neitað að koma fram í kappræðuþáttum með mótframbjóðendum sínum.
Erlent Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ekið á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Sjá meira