Fótbolti

Scholes spilar sinn 100. leik í kvöld

Paul Scholes
Paul Scholes NordcPhotos/GettyImages

Miðjumaðurinn Paul Scholes hjá Manchester United nær merkum áfanga í kvöld þegar hann spilar væntanlega sinn 100. leik í Meistaradeildinni.

Scholes kemst þar í sannkallaðan úrvalshóp manna sem náð hafa þessum merka áfanga - manna eins og félaga hans hjá United, David Beckham og Ryan Giggs. Ef Gary Neville kemur við sögu í leiknum í kvöld yrði það hans 99. Meistaradeildarleikur á ferlinum.

Alex Ferguson knattspyrnustjóri var spurður að því hvort hann ætlaði að gera Scholes að fyrirliða í leiknum í kvöld af þessu tilefni, en Ferguson hélt nú annað.

"Hann mundi líta á það sem refsingu," sagði Ferguson glaðbeittur, en Scholes er ekki mikið fyrir að standa út úr fjöldanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×