100 þrefaldar tvennur hjá Jason Kidd Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. apríl 2008 10:32 Kidd tekur eitt af tíu fráköstum sínum í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Jason Kidd náði í nótt sinni 100. þrefaldri tvennu og þeirri fyrstu síðan hann gekk aftur til liðs við Dallas Mavericks í vetur. Kidd skoraði 27 stig, tók tíu fráköst og gaf tíu stoðsendingar í sigri Dallas á New Orleans í nótt. Sigurinn tryggði Dallas sjöunda sætið í Vesturdeildinni en liðið mætir einmitt New Orleans í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Kidd er aðeins þriðji leikmaðurinn í NBA-deildinni sem nær þessum áfanga en hinir eru Oscar Robertson sem náði 181 þrefaldri tvennu á sínum ferli og Magic Johnson sem náði 138 slíkum. „Það góða er að Dirk (Nowitzky) er með eina þrefalda tvennu. Ég hef því forskot á hann," sagði Kidd. „En hann sagði mér að þetta væri allt að koma hjá honum." „En Oscar og Magic eru menn sem breyttu íþróttinni. Ég er mjög ánægður með að vera í sama félagsskap og þeir." Næstir á listanum eru Wilt Chamberlain sem náði 78 þreföldum tvennum og Larry Bird með 59. Kidd er á öðru sæti yfir flestar þrefaldar tvennur í úrslitakeppninni með ellefu talsins. Magic er efstur á þeim lista með 30. Þetta var þrettánda þrefalda tvennan hjá Kidd á tímabilinu og er það persónulegt met hjá honum. Í fyrra náði hann tólf slíkum og var það í fyrsta skiptið sem hann náði meira en tíu þreföldum tvennum á sama tímabilinu. Á sínu fyrsta tímabili, 1994-95, náði hann fjórum þreföldum tvennum.
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira