NBA molar: Besta hittni í átta ár 5. nóvember 2008 18:28 Steve Nash og félagar voru heitir í gærkvöldi NordicPhotos/GettyImages
Leikmenn Phoenix Suns voru heldur betur í stuði í nótt þegar þeir unnu 114-86 stórsigur á New Jersey á útivelli í NBA deildinni. Liðið var með 63% skotnýtingu í leiknum, en besta nýtingin hjá liðinu var í öðrum leikhlutanum þegar liðið hitti úr 13 af 14 skotum sínum (92,9% nýting). Þetta var besta nýting í fjórðung í leik í NBA deildinni í átta ár eða síðan Seattle hitti úr 16 af 17 skotum sínum í öðrum leikhluta í leik gegn Dallas í nóvember árið 2000. Bell heitur Skotbakvörðurinn Raja Bell átti skínandi leik í gær og hitti úr öllum sex þristum sínum í leiknum. Þetta var í þriðja sinn á ferlinum sem hann hefur tekið sex þriggja stiga skot í leik og hitt úr þeim öllum. Aðeins einn leikmaður í tæplega 30 ára sögu þriggja stiga línunnar í NBA hefur jafnað þennan árangur. Það var miðherjinn Sam Perkins sem m.a. lék með Dallas, LA Lakers, Seattle og Indiana á árunum 1984-2001. Söguleg byrjun San Antonio San Antonio tapaði fyrir Dallas á heimavelli í nótt og hefur þar með tapað fyrstu þremur leikjum sínum í deildinni. Þetta er lakasta byrjun liðsins síðan það kom inn í NBA deildina. Liðið tapaði fjórum fyrstu leikjum sínum árið 1973, en þá var það í ABA deildinni. San Antonio gekk inn í NBA deildina árið 1976. Gasol-bræður í bækurnar Marc Gasol hjá Memphis, litli bróðir Pau Gasol hjá LA Lakers, skoraði 27 stig og hirti 16 fráköst gegn Golden State í vikunni. Bræðurnir spænsku eru þar með þriðju bræðurnir í sögu NBA til að ná að skora 25 stig og hirða 15 fráköst í leik í deildinni. Hinir bræðurnir voru tvíburarnir Harvey og Horace Grant og Chuck og Wesley Person.
NBA Mest lesið Sjáðu Orra fá hundrað þúsund manns til að öskursyngja Fótbolti „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Körfubolti Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Enski boltinn Stórslasaður eftir að hafa verið blindfullur á hjóli Sport Skall með höfuðið í gólfið og fékk heilahristing Körfubolti Baldvin á samningi hjá Nike: „Hélt ég myndi aldrei ná svona langt“ Sport Ronaldo gæti spilað með syni sínum Fótbolti Glaður að hafa ekki hlýtt gervigreindinni Fótbolti Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Enski boltinn Martröð Chelsea en Brighton gæti endað í Meistaradeild Evrópu Sport Fleiri fréttir Skall með höfuðið í gólfið og fékk heilahristing „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Tindastóll - Stjarnan 95-96 | Sóttu fyrsta sigurinn þrátt fyrir áföllin Fyrstur til að vera kosinn varnarmaður ársins með fullu húsi Pressan á Tindastól? „Einhver sálfræði 101 sem hann er að reyna rembast við“ Úlfarnir og Haukarnir með endurkomur Selfyssingar svöruðu fyrir sig Uppgjörið: Haukar - Keflavík 85-71 | Öruggt hjá Hafnfirðingum í fyrsta leik Martin næstum því með stig á mínútu í öruggum sigri Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Of mikil pása gæti verið slæm „Vildi að pabbi væri hérna“ Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí „Orðnar betri í að standa saman og klára leikinn“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Luke leiddi Lakers til sigurs í fjarveru Luka Hamar/Þór áfram í Bónusdeildinni eftir endurkomusigur Tryggvi góður en liðið tapaði leik sem þurfti að vinnast Kerr íhugar framtíð sína eftir tap í umspilinu Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Sindramenn og Blikar byrja vel Uppgjör: KR-Keflavik 83-91 | Keflavíkurkonur í undanúrslit Luka Doncic vann áfrýjunina og er gjaldgengur fyrir öll verðlaun NBA Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Curry hélt stríðsmönnunum á lífi Völdu kærustu hennar líka númer eitt Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik J. Cole slítur samningi sínum í Kína Sjá meira