Fótbolti

Perrin rekinn frá Lyon

Elvar Geir Magnússon skrifar

Alain Perrin hefur verið rekinn frá franska liðinu Lyon. Undir stjórn Perrin vann liðið bæði franska meistaratitilinn og frönsku bikarkeppnina á síðasta leiktímabili.

Árangurinn í Meistaradeild Evrópu var hinsvegar ekki ásættanlegur fyrir stjórn félagsins en Lyon féll út í sextán liða úrslitum.

Perrin er 52 ára en hann tók við Lyon fyrir ári síðan. Perrin stýrði Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni á sínum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×