Guðmundur Guðmundsson hefur framlengt samning sinn við HSÍ til næstu fjögurra ára. Þetta var kynnt á blaðamannafundi nú fyrir skömmu. Guðmundur stýrði íslenska liðinu til silfurs á Ólympíuleikunum í Peking nú í ágúst.
Jafnframt var Óskar Bjarni Óskarsson ráðinn áfram aðstoðarþjálfari Guðmundar og kynnt voru framtíðaráform HSÍ til næstu fjögurra ára.