Phil Jackson þjálfar stjörnulið Vesturdeildar 22. janúar 2009 15:33 Hér má sjá keppnisbúningana sem notaðir verða í ár, en þeir voru fyrir skömmu kynntir af Adidas
Phil Jackson, þjálfari LA Lakers, mun þjálfa úrvalslið Vesturdeildarinnar í stjörnuleiknum árlega í NBA sem fram fer í Phoenix þann 15. næsta mánaðar. Þetta var tilkynnt eftir að ljóst varð að Lakers-liðið verður í versta falli með jafngott vinningshlutfall og San Antonio Spurs þann 1. febrúar. Styttra er síðan Gregg Popovich þjálfari San Antonio stýrði stjörnuliði og því fengi Jackson heiðurinn ef liðin yrðu jöfn í töflunni. Lakers liðið hefur unnið 33 leiki og tapað aðeins 8 og virðist ætla að stinga af í Vesturdeildinni þetta árið. Jackson mun stýra liði í stjörnuleik í fjórða skipti á ferlinum, en hann þjálfaði lið Austurdeildar árin 1992 og 1996 sem þjálfari Chicago Bulls og Vesturdeildar árið 2000 þegar hann var þjálfari Lakers. Þjálfari má ekki stýra liði í stjörnuleiknum tvö ár í röð og fyrir þær sakir komu þeir Doc Rivers hjá Boston og Byron Scott hjá New Orleans ekki til greina að þessu sinni. Stjörnuleikurinn er mjög vinsæll viðburður í NBA deildinni sem markar miðpunkt keppnistímabilsins. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport eins og undanfarin ár.
NBA Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Handbolti Fleiri fréttir „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Sjá meira