Fótbolti

Lampard vill helst ekki mæta Liverpool

Frank Lampard er ekki hrifinn af því að mæta Liverpool enn eina ferðina
Frank Lampard er ekki hrifinn af því að mæta Liverpool enn eina ferðina NordicPhotos/GettyImages

Frank Lampard, leikmaður Chelsea, vill helst ekki mæta Liverpool þegar dregið verður í 8-liða úrslitin í Meistaradeildinni.

Liverpool og Chelsea hafa mæst þrisvar sinnum í undanúrslitum keppninnar síðustu fjögur ár, en það var ekki fyrr en í fyrra sem Chelsea tókst loks að hafa betur og komast í úrslitaleikinn. Lampard vill gjarnan sleppa við að mæta Liverpool enn eina ferðina.

"Kannski vill Liverpool ekki heldur lenda á móti okkur. Ég held að allir séu orðnir leiðir á þeirri rimmu. Það má vel vera að það verði örlög okkar að mæta Liverpool, en við tökum á því ef það gerist," sagði Lampard.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×