Fótbolti

Aktobe tapaði eftir að hafa verið þremur mörkum yfir

Elvar Geir Magnússon skrifar
FH-banarnir eru úr leik. Mynd/Valli
FH-banarnir eru úr leik. Mynd/Valli

Aktobe frá Kasakstan er úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir að hafa tapað 4-3 fyrir Maccabi Haifa frá Ísrael í kvöld. Fyrri viðureignin í Kasakstan endaði með markalausu jafntefli.

Leikurinn í kvöld var ótrúlegur en Aktobe komst í 3-0 eftir aðeins fimmtán mínútna leik. Þá hrundi leikur liðsins, Haifa náði að skora tvö mörk fyrir hálfleik og tryggði sér síðan sigurinn með tveimur mörkum í seinni hálfleik.

Aktobe sló Íslandsmeistara FH úr keppni í síðustu umferð forkeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×