Fótbolti

Rooney: Iniesta er besti leikmaður heims

Nordic Photos/Getty Images

Wayne Rooney hrósaði miðjumanninum Andres Iniesta í hástert eftir úrslitaleikinn í meistaradeildinni í gærkvöldi þar sem Barcelona vann 2-0 sigur á Manchester United.

Rooney átti frekar dapran dag hjá United en viðurkenndi að Iniesta hefði farið á kostum hjá Barcelona.

"Barcelona er stórkostlegt lið og að mínu mati er Andres Iniesta besti leikmaður í heimi. Hann er ótrúlegur," sagði Rooney.

"Barcelona spilar gríðarlega vel og ef maður nýtir ekki færin á móti þeim, munu þeir refsa þér og það er það sem gerðist. Við erum samt með ungt lið og vonandi náum við að rífa okkur upp úr þessu," sagði Rooney.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×