Kominn tími á að lyfta bikar í Höllinni 24. janúar 2009 22:42 Fannar Ólafsson barðist eins og ljón í leiknum í dag Mynd/Vilhelm "
Ég held að við höfum sýnt það hér í kvöld hverjir eru með besta lið á Íslandi," sagði Fannar Ólafsson miðherji KR eftir sigurinn á Grindavík í undanúrslitum Subway bikarsins í dag. Sigur KR var aldrei í sérstakri hættu eftir frábæran fyrsta fjórðung sem KR vann 26-12 og héldu heimamenn lengst af um eða yfir 10 stiga forystu. Lokatölur urðu 82-70 í DHL-höllinni. "Við spiluðum hörkuvörn og héldum Grindavík í 70 stigum, Páli Axel í átta stigum og Brenton Birmingham í ellefu. Ég held að sé ekkert annað lið sem getur þetta. Þeir voru ekki að hitta vel og voru kannski yfirspenntir. Við hefðum kannski frekar viljað mæta þeim í úrslitum í Höllinni, en þetta var okkar dagur í dag," sagði rennsveitur og ánægður miðherjinn, sem skoraði 15 stig og hirti 9 fráköst í leiknum. Stemmingin í vesturbænum var ólýsanleg í dag. Um 1500 manns voru í húsinu sem var troðfullt og hitinn eins og í finnsku sauna. Fannar segir vesturbæinga orðna hungraða eftir að ná stórum titli í Laugardalshöllinni. "KR hefur ekki lyft bikarnum í Höllinni síðan árið 1990 þannig að það verður lítið mál að gíra okkur upp í það. Það voru 1500 manns í húsinu í dag og ef það segir ekki sína sögu um stjórn KR, umgjörðina og stuðningsmennina - þá veit ég ekki hvað gerir það. Ég er búinn að vera lengi í þessu en ég hef aldrei séð annað eins í undanúrslitaleik í bikar," sagði Fannar ánægður.
Dominos-deild karla Mest lesið Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur Handbolti Félagið neitar að borga svo Amorim opnar veskið Enski boltinn Sonur Ronaldo spilaði fyrsta landsleikinn fyrir Portúgal Fótbolti Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Körfubolti Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik Körfubolti Slógu toppliðið út og komust í austur úrslitin annað árið í röð Körfubolti „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Körfubolti Dagskráin í dag: Úrslitaeinvígið og Benóný Breki Sport Kvennalið Everton mun spila á Goodison sem verður ekki rifinn Enski boltinn „Að lokum var það betra liðið sem vann“ Körfubolti Fleiri fréttir Slógu toppliðið út og komust í austur úrslitin annað árið í röð Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik „Að lokum var það betra liðið sem vann“ „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Tatum með slitna hásin Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Sjáðu stemmningsmyndbandið fyrir oddaleikinn „Mætum óttalaus“ Settu nýtt met í heppni og fá velja fyrstir Meistararnir á bjargbrún og langri bið Knicks að ljúka Þriggja ára reglan heyrir sögunni til Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Uppgjörið: Ármann - Hamar 91-85 | Ármann leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Lögmálið: „Er eitthvað að því að Randle sé búinn að vera betri en Ant?“ Indiana tók Cleveland í bakaríið „Pabbi og mamma Milka, Hesseldal, Basile og Dinkins hljóta að koma sterk inn í haust“ Hermann Hauks um hegðun Agravanis: Lið í Evrópu vilja hann ekki út af þessu „Gerðum hlutina rétt í þessum leik“ Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 103-74 | Andlegt gjaldþrot gestanna í stjörnuleik Ægis KKÍ breytir reglum varðandi erlenda leikmenn „Stoltið sem fylgir því að verja sinn heimavöll verður að vera til staðar“ „Við ætluðum bara ekki að tapa“ Úlfarnir búnir að snúa einvíginu sér í vil Meistararnir á lífi eftir stórsigur í New York „Persónulega fannst mér þær byrja að fagna of snemma“ Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 94-78 | Njarðvíkingar settu í fimmta gír í seinni „Mikilvægt að okkar uppöldu KR-ingar spili með félaginu“ Hamarsmenn tryggðu sér oddaleik Hristi af sér meiðsli á „ódauðlega“ ökklanum og fagnaði sigri Sjá meira