Golf

Tiger og Westwood saman

Elvar Geir Magnússon skrifar
Tiger Woods verður í eldlínunni á Opna breska meistaramótinu sem hefst á fimmtudag.
Tiger Woods verður í eldlínunni á Opna breska meistaramótinu sem hefst á fimmtudag.

Ljóst er að flest augu munu beinast að þeim Tiger Woods og Lee Westwood fyrstu tvo keppnisdagana á Opna breska meistaramótinu. Þeir munu leika saman þá daga en mótið hefst á fimmtudag.

Mótið fer fram á Turnberry vellinum á Englandi en þriðji meðlimur ráshópsins er hinn ungi Ryo Ishikawa frá Japan sem er að leika á sínu fyrsta Opna breska meistaramóti.

Allir þekkja þær vinsældir sem Tiger Woods nýtur en þá mun Westwood einnig fá góðan stuðning enda á heimavelli.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×