Birkir Bjarnason lék allan leikinn fyrir Viking sem lagði topplið Molde, 2-1, í norsku úrvalsdeildinni í dag.
Viking skaust með sigrinum upp í fjórða sæti deildarinnar en Molde er sem fyrr á toppnum.
Þetta var fyrsta tap Molde á leiktíðinni sem er tiltölulega nýhafin.