Sport

Blanc vill ná mun betri árangri í Meistaradeildinni

Ómar Þorgeirsson skrifar
Fögnuður aðdáenda Bordeaux um helgina.
Fögnuður aðdáenda Bordeaux um helgina. Mynd/Nordicphotos/Getty

Knattspyrnustjórinn Laurent Blanc hafði ríka ástæðu til þess að fagna um helgina þegar lið hans Bordeaux varð franskur meistari eftir frækinn endasprett þar sem félagið vann hvorki fleiri né færri en síðustu ellefu leiki sína í deildinni.

Bordeaux vann þar með sinn sjötta deildartitil í sögu félagsins og batt jafnframt enda á sjö ára einokun Lyon að franska meistaratitlinum.

Enginn efast um árangur hins 43 ára gamla Blanc en hann gerir sjálfur lítið úr eigin ágæti í viðtali við heimasíðu UEFA og eignar leikmönnum sínum mestan heiðurinn. Blanc er jafnframt strax farinn að leggja á ráðinn fyrir næstu leiktíð og vill að Bordeaux nái að festa sig betur í sessi í Meistaradeildinni.

"Leikmennirnir eru eins og leikarar á sviði en þjálfararnir eru bara einhvers staðar baka til og geta ekki haft mikil áhrif á hvað er að gerast á sviðinu. Þjálfari er ekkert án góðra leikmanna. Ég bý að frábærum leikmannahópi hjá Bordeaux. Það væri ánægjulegt að geta náð talsvert lengra í Meistaradeildinni á næsta tímabili og það er stefnan," segir Blanc.

Blanc getur glaðst yfir því að Yoann Gourcuff, sem valinn var leikmaður tímabilsins í Frakklandi, hefur gengið frá félagsskiptum sínum frá AC Milan til Bordeaux en hann var í láni hjá franska félaginu á nýafstaðinni leiktíð. Þá hefur framherjinn Marouane Chamakh einnig látið í ljós vilja sinn að vera áfram hjá félaginu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×