Fótbolti

Henry og Iniesta klárir í úrslitaleikinn

AFP

Thierry Henry og Andres Iniesta hjá Barcelona eru báðir farnir að æfa á fullu með liðinu og verða því klárir í slaginn á miðvikudagskvöldið þegar liðið mætir Manchester United í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Henry hefur átt við hnémeiðsli að stríða síðan í 6-2 sigri Barcelona á Real Madrid í byrjun mánaðar en Iniesta tognaði á læri í 3-3 jafntefli Barcelona gegn Villarreal þann 10. maí.

Henry hefur skorað 25 mörk fyrir Katalóníuliðið á leiktíðinni og verður væntanlega í framlínu liðsins í úrslitaleiknum ásamt þeim Lionel Messi og Samuel Eto´o.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×