Hrikalegt að þurfa að sjá sigurkörfuna aftur og aftur 24. maí 2009 19:49 Dwight Howard AFP
Orlando Magic og Cleveland Cavaliers mætast þriðja sinni í úrslitum Austurdeildarinnar í NBA í nótt. Leikmenn Orlando eru eflaust enn að jafna sig eftir áfallið sem þeir urðu fyrir í fyrrinótt þegar LeBron James skoraði kraftaverkakörfuna sem tryggði Cleveland sigur í öðrum leiknum í Cleveland. "Það er hræðilegt að þurfa að horfa upp á þetta aftur og aftur á leiðinni heim," sagði miðherjinn Dwight Howard hjá Orlando, sem átti ekki sinn besta leik fyrir Orlando í leik tvö. Staðan er 1-1 í einvíginu. Orlando stal fyrsta leiknum í Cleveland eftir góðan endasprett og var aðeins einni sekúndu frá því að komast í 2-0 í einvíginu með næstu tvo leikina á heimavelli. LeBron James var ekki á því að láta það gerast og stimplaði sig í sögubækur með þriggja stiga skoti sínu um leið og lokaflautið gall í fyrrakvöld. Hann ætlar þó ekki að gleyma sér í gleðinni, enda á Cleveland mjög erfitt verkefni fyrir höndum niðri á Flórída í næstu tveimur leikjum. "Þetta er búið og gert," sagði James, en ef næstu leikir verða eitthvað í líkingu við annan leikinn, má vel vera að áhorfendur eigi von á fleiri sögulegum skotum í einvíginu. Þriðji leikur liðanna verður sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan 0:30 í nótt.
NBA Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Sjá meira