Loksins sigur hjá New Jersey Nets Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. desember 2009 10:45 Kiki Vandeweghe og Del Harris byrjuðu þjálfaraferilinn vel hjá New Jersey. Mynd/AFP
New Jersey Nets vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu í nótt og það í nítjándu tilraun. Liðið vann þá 97-91 heimasigur á Charlotte Bobcats. Nets-liðið var þegar búið að setja met yfir verstu byrjun í sögu NBA-deildarinnar með því að tap 18 fyrstu leikjum sínum. Þetta var fyrsti leikur liðsins undir stjórn Kiki Vandeweghe. Brook Lopez var með 31 stig og 14 fráköst hjá Nets og Courtney Lee bætti við 27 stigum eftir að hafa verið settur inn í byrjunarliðið. Raymond Felton og Stephen Jackson skoruðu báðir 28 stig fyrir Bobcats. Nets hafði ekki unnið leik síðan að þeir unnu einmitt Charlotte 13. apríl síðastliðinn. Zach Randolph var með 24 stig og 15 fráköst og O.J. Mayo bætti við 25 stigum í 98-82 sigri Memphis Grizzlies á Dallas Mavericks. Jason Terry var stigahæstur hjá Dallas með 18 stig en liðið hitti aðeins úr 35,2 prósent skota sinna í leiknum. Chris Paul snéri aftur í lið New Orleans Hornets eftir að hafa misst af átta leikjum vegna ökklameiðsla og var með 16 stig, 15 fráköst og 8 stolna bolta í 98-89 sigri á Minnesota Timberwolves. Devin Brown var stigahæstur hjá New Orleans með 19 stig en Al Jefferson var með 20 stig og 14 fráköst hjá Minnesota. Carlos Boozer var með 35 stig og 13 fráköst í 96-87 sigri Utah Jazz á Indiana Pacers. Þetta var fjórði sigur Utah-liðsins í röð. Danny Granger skoraði 26 stig fyrir Indiana. Rodney Stuckey var með 19 stig og sænski nýliðinn Jonas Jerebko bætti við 16 stigum þegar Detroit Pistons vann 105-96 sigur á Millwaukee Bucks en þetta var fimmta tap Bucks-liðsins í síðustu sex leikjum. Luke Ridnour skoraði mest fyrir Milwaukee eða 21 stig.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira