AC Milan hefur sett bosníska framherjann Edin Dzeko efstan á óskalistann sinn og er talið vera að undirbúa tilboð upp á 25 milljónir evra í leikmanninn.
Það gæti þó ekki dugað þar sem Wolfsburg vill fá 40 milljónir evra fyrir hann. Milan mun á næstu dögum senda fulltrúa til Bosníu til viðræðna við faðir og umboðsmann Dzeko.
Milan er ekki eina félagið með Dzeko í sigtinu þvi bæði Man. Utd og Chelsea eru sögð hafa áhuga á honum.