Fótbolti

Eiður ekki í leikmannahópi Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Eiður fær ekki tækifæri í kvöld.
Eiður fær ekki tækifæri í kvöld. Nordic Photos/Getty Images

Búið er að gefa út byrjunarliðin í leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í leikmannahópi Barcelona sem tekur á móti franska liðinu Lyon.

Fyrri leik liðanna lyktaði með 1-1 jafntefli og því von á baráttuleik á Nou Camp í kvöld.

Sir Alex Ferguson treystir á reynsluna gegn Inter og þeir Ryan Giggs og Paul Scholes eru báðir í byrjunarliði Man. Utd.

Vísir mun greina beint frá stöðu mála í leikjum kvöldsins og þar verður einnig hægt að sjá öll byrjunarlið kvöldsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×