Jón Arnór valinn bestur - Teitur besti þjálfarinn 12. mars 2009 14:15 Jón Arnór Stefánsson var með 23,0 stig að meðaltali á móti fimm bestu liðum deildarinnar í seinni hlutanum. Mynd/Vilhelm
Jón Arnór Stefánsson, leikmaður deildarmeistara KR, var í dag verðlaunaður af Körfuknattleikssambandi Íslands þegar hann var valinn besti leikmaður seinni hluta Iceland Express deildar karla. Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, var við sama tækifæri kosinn besti þjálfari seinni hlutans. Jón Arnór Stefánsson var í lykilhlutverki hjá KR-liðinu sem vann 10 af 11 leikjum sínum í seinni hlutanum og tryggði sér deildarmeistaratitilinn. Jón Arnór var með 19,6 stig, 5,7 stoðsendingar og 2,3 stolna bolta að meðaltali í seinni hlutanum en hann hitti þá úr 44,7 prósent af 47 þriggja stiga skotum sínum. Þegar Teitur Örlygsson tók við þjálfun Stjörnuliðsins þá snéri hann við gengi liðsins. Stjarnan vann aðeins 2 af 10 leikjum fyrir komu hans en hefur unnið 8 af 12 deildarleikjum sínum með hann á bekknum. KR á flesta leikmenn í úrvalsliðinu eða tvo því auk Jóns Arnórs var Jakob Örn Sigurðarson einnig valinn í liðið. Þeir tveir voru einnig í úrvalsliði fyrri hlutans en aðrir í liðinu eru Justin Shouse úr Stjörnunni, Brenton Birmingham úr Grindavík og Hlynur Bæringsson úr Snæfelli. Keflvíkingurinn Jón Norðdal Hafsteinsson var valin dugnaðarforkurinn en þau verðlaun er fyrir þann leikmann sem leggur mikið að mörkum til síns liðs þó að ekki teljist það allt í tölfræðinni. Jón Norðdal hefur að vanda fórnað sér og sínu fyrir Keflavíkurliðið í vetur. Verðlaun KKÍ fyrir seinni hluta Iceland Express-deildar karla: Fimm manna úrvalslið: Justin Shouse, Stjörnunni Jakob Örn Sigurðarson, KR Jón Arnór Stefánsson, KR Brenton Birmingham, Grindavík Hlynur Bæringsson, Snæfelli Besti leikmaðurinn: Jón Arnór Stefánsson, KRBesti þjálfarinn: Teitur Örlygsson, StjörnunniDugnaðarforkurinn: Jón Norðdal Hafsteinsson, KeflavíkBesti dómarinn: Sigmundur Már Herbertsson, Njarðvík
Dominos-deild karla Mest lesið „Þá sér maður að það brestur margur og klökknar“ Sport Heimi fannst Arnar byrja of bratt með Ísland Fótbolti Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Enski boltinn Newcastle loks að fá leikmann Enski boltinn Sjáðu dramatísku sigurmörkin og Stjörnumenn skella Víkingum Íslenski boltinn Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Enski boltinn Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Enski boltinn Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Enski boltinn Mun Jake Paul mæta Anthony Joshua í hringnum? Sport Vilja dæma skíðastökkvarana í bann vegna saumaskandalsins Sport Fleiri fréttir Með fyrsta þrjátíu tuttugu leikinn í sögu WNBA Ótryggður Giannis tekur ekki þátt í undirbúningi Grikklands Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena Pólland missir NBA stjörnu fyrir Eurobasket Stelpurnar töpuðu þrátt fyrir frábæra byrjun Stockton segir að LeBron „hafa notað þyrlu til að komast á toppinn“ Serbi inn í teig hjá Stólunum: „Ég veit að áhorfendurnir elska körfubolta“ Stelpurnar spila um sjöunda sætið á Eurobasket „Þeir eiga allir skilið að fara í lokahópinn“ Stelpurnar Norðurlandameistarar og strákarnir fengu silfur Þýskaland lagði Slóvena í undirbúningi fyrir Eurobasket Celtics festa þjálfarann í sessi NBA stjarna borin út Litáen of stór biti fyrir íslensku stelpurnar Öruggar með besta árangur Íslands á EM frá upphafi Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Sjá meira