Tveir leikir fóru fram í fjórðungsúrslitum ítölsku bikarkeppninnar í fótbolta í kvöld þar sem Inter sló út Roma með 2-1 sigri.
Það voru þeir Adrian og Zlatan Ibrahimovic sem skoruðu mörk Inter í kvöld en liðið mætir Sampdoria í undanúrslitunum.
Fyrr í kvöld vann Sampdoria sigur á Udinese en staðan að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu var 1-1. Sampdoria vann svo 4-1 sigur í framlengingu.