Fótbolti

Arsenal áfram eftir vítaspyrnukeppni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Leikmenn Arsenal fagna hér Almunia.
Leikmenn Arsenal fagna hér Almunia. Nordic Photos/Getty Images

Arsenal tryggði sér síðasta sætið í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Það gekk ekki þrautalaust fyrir sig enda þurfti bæði framlengingu og vítaspyrnukeppni til.

Juan skoraði eina mark leiksins á 9. mínútu. Fyrri leik liðanna lyktaði með 1-0 sigri Arsenal og því varð að framlengja. Framlengingin var í daufari kantinum, ekkert skorað og því varð að grípa til vítaspyrnukeppni.

Það var Króatinn Eduardo sem tók fyrsta vítið. Hinn ungi framherji nýkominn til baka undir mikilli pressu og hann lét Doni verja frá sér.

David Pizarro tók fyrsta víti Roma og hann skoraði örugglega fram hjá Almunia sem þó fór í rétt horn. 1-0 í vítakeppninni.

Þá var komið að Robin Van Persie fyrir Arsenal. Hann sendi Doni í vitlaust horn og skoraði örugglega. 1-1.

Mirko Vucinic steig þá upp fyrir Roma en glórulaust víti hans fór beint í fæturnar á Almunia. 1-1.

Theo Walcott tók næstu spyrnu Arsenal og hann skoraði með naumindum enda fór boltinn í gegnum fingur Donis. 1-2.

Julio Baptista var næstur í röðinni og skoraði af miklu öryggi. 2-2.

Þá var komið að Samir Nasri sem var í engum vandræðum með að skora. 2-3.

Vicenzo Montella kom af bekknum til að taka víti og hann skoraði af miklu öryggi. 3-3.

Það var því mikil pressa á Denilson sem tók fimmta víti Arsenal. Hann bugaðist ekki of skoraði af öryggi. 3-4.

Almunia gat því komið Arsenal áfram með því að verja frá Francesco Totti. Það gerði hann ekki því Totti skoraði af öryggi og vítakeppnin fór því í bráðabana. 4-4.

Kolo Toure tók næstu spyrnu og skoraði af öryggi. 4-5.

Aquilani jafnaði af öryggi fyrir Roma. 5-5.

Bacary Sagna hélt Arsenal á lífi með öruggu víti. 5-6.

Þá kom John Arne Riise á punktinn og hann skoraði með föstu skoti. 6-6.

Áttundu spyrnu Arsenal tók Abou Diaby. Hann skoraði líka örugglega. 6-7.

Max Tonetto tók næst spyrnu Roma en skaut hátt yfir og Arsenal því komið áfram.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×