Í ítarlegri umfjöllun um málið á Bloomberg fréttaveitunni segir að pundið hafi fallið um 6,2% frá áramótum og er þetta versta byrjun á ári hjá pundinu í 13 ár. Menn hafa einkum áhyggjur af tvennu. Annarsvegar að fjárlagahalli Bretlands á þessu árið verð jafn og hjá Grikklandi eða 12,7% af landsframleiðslu. Hinsvegar að metlántökur breskra stjórnvalda muni ýta skuldakostnaðinum upp þannig að stjórnvöld neyðist til að prenta meiri peninga með tilheyrandi veikingu á pundinu.
Sjálfur áætlar Gordon Brown forsætisráðherra Breta að fjárlagahallinn gæti orðið um 12,6% af landsframleiðslu en það er nær sama hlutfall og hjá Grikkjum sem olli árás spákaupmanna á evruna. Vegna hallans hafa vextir á breskum ríkisskuldabréfum til 10 ára hækkað um eitt prósentustig á liðnu ári og standa nú í rúmum 4%.
Á Bloomberg segir að í byrjun mars hafi vogunarsjóðir og stórir spákaupmenn verið með 67,549 fleiri veðmál (skortstöður) um að pundið muni veikjast gegn dollaranum en veðmál um að pundið muni styrkjast. Þessir fjárfestar hafa ekki veðjað gegn pundinu í jafnmiklum mæli síðan árið 1986 eða eins langt og tölfræðin nær um slík viðskipti.