Shaquille O’Neal á leiðinni til Boston Celtics Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. ágúst 2010 23:30 Shaquille O’Neal. Mynd/Getty Images
Shaquille O'Neal virðist loksins vera búinn að finna lið sem vill fá hann í NBA-deildinni á næsta tímabili. Lið hafa ekki sýnt O'Neal mikinn áhuga til þessa í sumar en nú segja bandarískir fjölmiðlar að Shaq sé nálægt því að semja við Boston Celtics. Kendrick Perkins meiddist illa á hné í úrslitakeppninni og missir nokkra mánuði af tímabilinu en Boston er þegar búið að semja við Jermaine O'Neal um að fylla í hans skarð. Shaquille O'Neal verður því væntanlega varamaður nafna síns. Shaq er víst tilbúinn að taka lágmarkslaun til þess að reyna að vinna fimmta titilinn sinn á ferlinum. Hann mun væntanlega stíga inn í hlutverk hins skapheita Rasheed Wallace sem lagði skónna upp á hillu eftir síðasta tímabil. Shaquille O'Neal mun vissulega hjálpa Boston-liðinu til að byrja með en spilatími hans gæti minnkað mikið þegar Perkins kemur til baka. Það mun reyna á Doc Rivers að halda þeim Shaquille O'Neal, Jermaine O'Neal, Kendrick Perkins, Kevin Garnett og Glen Davis öllum góðum. Shaquille O'Neal er orðinn 38 ára gamall og er að fara að hefja sitt nítjánda tímabil í NBA-deildinni. Hann er fimmti stigahæsti leikmaður sögunnar með 28255 stig í 1170 leikjum sem gera 24,1 stig að meðaltali í leik.
NBA Mest lesið Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Íslenski boltinn Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Íslenski boltinn Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Sport „Þorsteinn er allt of lengi að bregðast við“ Fótbolti Hvaðan koma peningarnir sem Tottenham er að eyða? Fótbolti Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Körfubolti Leik lokið: Svíþjóð 4 - 1 Þýskaland | Úrslitaleikur um efsta sætið Fótbolti Rústaði úrslitunum á Wimbledon Sport Fleiri fréttir Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn Sjá meira