Meirihluti nemenda verðskuldar meiri athygli 20. ágúst 2010 06:00 Ég þakka svör Ólafs H. Helgasonar og Guðmundar J. Guðmundssonar við grein minni frá 30. júlí s.l. Ekki get ég annað en brugðist við þó að það hafi í för með sér að enn víkur sögunni að því sem ég álít minniháttar vanda í skólakerfinu, þ.e. innritunarreglum í framhaldsskóla. Ég ítreka að tíma okkar sem höfum áhuga á skólamálum væri mun betur varið í að ræða alvarlegri mál, svo sem þá staðreynd að mun færri nemendur ljúka framhaldsskólanámi hér en eðlilegt getur talist. Sú staðreynd ein og sér ætti að duga til að sannfæra menn um að eitthvað er bogið við þá skipan skólamála sem við höfum vanist og aðkallandi að leita annarra leiða til að tryggja fleirum menntun. Ég varpaði fram þeirri hugmynd (sem hvorki er sérlega frumleg né ný af nálinni) að okkur væri hollt að huga að fjölmenningu og á þar við að meiri blöndun nemenda sem búa yfir mörgum og ólíkum styrkleikum væri hópnum í heild til hagsbóta. Í blaðagrein gefst ekki tækifæri til að vísa í heimildir og ég hef heldur ekki fleiri orð um þá skoðun Guðmundar að markviss fræðsla og áróður gefist betur þegar unnið er gegn fordómum heldur en að t.d. fólk af ólíkum uppruna vinni saman hlið við hlið - þar er ég einfaldlega hjartanlega ósammála. En fyrst að ég fullyrði að engu ungmenni sem er að ljúka grunnskólanámi sé vísað í lélegan skóla er rétt að staldra þar við. Hvernig er hægt að mæla gæði skóla? Ólafur telur að fjöldi umsókna sextán ára fólks um skólavist sé gildur mælikvarði. Með sama hætti mætti þá fullyrða að Michael Jackson sé besti tónlistarmaður mannkynssögunnar, Avatar og Titanic bestu kvikmyndirnar og Tilvitnanir í Maó formann engu ómerkara rit en Biblían og Kóraninn. Öllum má ljóst vera að við þetta er ýmislegt að athuga þó að margir hafi viljað kaupa vöruna. Þegar kemur að skólum verða málin nokkuð flókin. Nauðsynlegt hlýtur að vera að skoða hvað nemendur koma með inn í framhaldsskólann í upphafi og bera það saman við það sem þeir koma með út. Nemandi með 8,5 eða hærra í meðaleinkunn eftir grunnskóla virðist óneitanlega bókhneigður og ekki er ólíklegt að hann stefni á háskólanám. Engum framhaldsskóla getur veist erfitt að styðja hann á leiðinni þangað. Þá er eftir meirihluti íslenskra nemenda sem verðskulda meiri athygli en þeir almennt fá í umræðunni. Í mörgum skólum er unnið merkilegt starf við að laða fram styrkleika þeirra og gera þeim kleift að standa jafnfætis hinum í námi eða starfi þegar fram líða stundir. Þegar vel tekst til verða gífurlegar framfarir hjá mörgum nemendum á framhaldsskólaárunum og verður spennandi að sjá niðurstöður vandaðrar rannsóknar á því hvernig nemendur koma undirbúnir í háskóla úr hinum ýmsu skólum. En „menntun" er víðfeðmt hugtak sem á ekki einungis við um undirbúning langskólanáms og því vafasamt að fullyrða að ein gerð skóla sé betri en önnur. Ætli reyndin sé ekki sú að flestir hafi eitthvað sér til ágætis og ef val nemenda um skólavist eftir grunnskóla væri upplýstara og byggði frekar á staðreyndum yrði dreifingin jafnari. Aldrei munu finnast innritunarreglur sem leiða til þess að allir nemendur komist inn í þann skóla sem þeir kjósa allra helst en í því felst ekki mikill harmleikur. Að fá skólavist er út af fyrir sig dýrmætt nú um stundir eins og þeir mörg hundruð eldri en átján ára sem hafnað var í ár vita mætavel. 45% úr hverfinu er trúlega ágætur millivegur, svo framarlega sem skólarnir bregðast ekki þeirri skyldu sinni að koma nemendum sínum til mennta með ráðum og dáð þó að með hverfishópnum slæðist inn einhverjir sem skólanum hugnast ekki við fyrstu sýn. Þegar upp er staðið er það allra ávinningur að saman í bekk séu bæði þeir sem hyggja á langskólanám og aðrir og er litrófið svo margslungið að fjölbreytnin er næg þó að bílgreinafólkið stormi í Borgarholt öðrum skólum fremur og verðandi kjötiðnaðarmenn í Kópavog. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðanir Skoðun Mest lesið Þegar einhverfan er ósýnileg: Stúlkur og konur á einhverfurófi Vigdís M. Einarsdóttir Skoðun Eru verkalýðsfélög úrelt eða bara óþægileg sumum? Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir Skoðun Góð, betri, best Heiðrún Kristmundsdóttir Skoðun Allt frítt í Garðabæ, eða ábyrgur rekstur ? Lárus Guðmundsson Skoðun Byrgjum brunninn í stað þess að byggja brunna Bryndís Rut Logadóttir Skoðun Er byggðastefna á Íslandi? Eyþór Stefánsson Skoðun Tímaskekkjan er ekki verkalýðshreyfingin Unnar Geir Unnarsson Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu Skoðun Eigum við að forgangsraða börnunum okkar? Ester Halldórsdóttir Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík? Ari Edwald Skoðun Skoðun Skoðun Þegar einhverfan er ósýnileg: Stúlkur og konur á einhverfurófi Vigdís M. Einarsdóttir skrifar Skoðun Er byggðastefna á Íslandi? Eyþór Stefánsson skrifar Skoðun Góð, betri, best Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar Skoðun Byrgjum brunninn í stað þess að byggja brunna Bryndís Rut Logadóttir skrifar Skoðun Eru verkalýðsfélög úrelt eða bara óþægileg sumum? Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Tímaskekkjan er ekki verkalýðshreyfingin Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Allt frítt í Garðabæ, eða ábyrgur rekstur ? Lárus Guðmundsson skrifar Skoðun Eigum við að forgangsraða börnunum okkar? Ester Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ætti Ísland að taka þátt í PISA? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun Betri heilsa – betri Kópavogur Arnar Grétarsson skrifar Skoðun Vélarnar ræstar út í skurð Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Að lifa, þrátt fyrir brotna odda Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík? Ari Edwald skrifar Skoðun Við klippum ekki borða! Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir Jóhann Pétur Guðvarðarson skrifar Skoðun Loftslagsmál snúast um jöfnuð og lífsgæði Skúli Helgason skrifar Skoðun Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson skrifar Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar einhverfan er ósýnileg: Stúlkur og konur á einhverfurófi Vigdís M. Einarsdóttir skrifar
Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar