Skoðun

Ramma­á­ætlun: Tvær til­lögur – tvenns konar vinnu­brögð

Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar

Verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar hefur lagt fram tvær tillögur sem nú eru opnar til samráðs í samráðsgátt stjórnvalda. Önnur varðar átta verndarsvæði og tilheyrandi virkjunarhugmyndir sem lagt er til að fari í verndarflokk. Hin varðar flokkun sjö vindorkuhugmynda. Samorka telur ástæðu til að gera athugasemdir við báðar tillögur en ekki síður við það ósamræmi sem birtist í vinnubrögðum sömu verkefnisstjórnar.

Verndartillagan byggir alfarið á mati frá 2011

Tillagan um verndarflokk er lögð fram í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli nr. 36/2023. Svæðin átta eru Jökulsá á Fjöllum, Geysir, Kerlingarfjöll, Brennisteinsfjöll, Gjástykki, Hólmsá, Jökulfall og Hvítá og Tungnaá. Kostirnir voru ekki metnir að nýju og byggir tillagan á niðurstöðum faghópa og verkefnisstjórnar í 2. áfanga rammaáætlunar sem lauk árið 2011.

Síðan 2011 hefur lagaumgjörð rammaáætlunar breyst verulega. Markmið laga nr. 48/2011 tekur nú til orkuöryggis almennings, orkuskipta og stefnu stjórnvalda um orkuöflun. Taka skal mið af vatnaáætlun, sem var ekki til árið 2011 og með reglugerð nr. 970/2026 liggur fyrir grunnur að mati á óbyggðum víðernum. Ekkert af þessu var lagt til grundvallar eða skoðað.

Vindorkukostir endurmetnir út frá nýjum lögum

Í tillögunni um sjö vindorkuhugmyndir fer sama verkefnisstjórn allt aðra leið. Faghóparnir endurmeta kostina meðal annars út frá breyttum lögum, nýrri 10. gr. a um sérstök sjónarmið við mat vindorkuhugmynda og nýjum gögnum að einhverju leyti. Verkefnisstjórn rekur sérstaklega að með lagabreytingunum hafi bæst við markmið um orkuöryggi almennings, orkuskipti og stefnu stjórnvalda um orkuöflun. Hér er talin full ástæða til að endurmeta kostina út frá nýjum lögum þó fyrra mat sé frá í fyrra.

Niðurstaðan er að Garpsdalur fari í nýtingarflokk, Alviðra og Hnotasteinn í biðflokk, en Hrútmúlavirkjun, Mosfellsheiðarvirkjun I og II og Sólheimar í verndarflokk.

Það er rétt nálgun að meta virkjunarkosti út frá gildandi lögum og nýjustu gögnum. Spurningin er hvers vegna sama nálgun á ekki við um verndartillöguna. Verkefnisstjórn starfar samkvæmt lögum og lögin gilda jafnt um báðar tillögur.

Einnig ástæða til athugasemda við vindorkutillöguna

Þótt nálgunin sé réttari er full ástæða til að gera athugasemdir við niðurstöðuna.

Orkuöflun fær lítið vægi. Þeir þættir sem horfa til orkuöflunar og bætt var við lögin eru metnir að mjög takmörkuðu leyti. Markmið stjórnvalda um orkuskipti koma hvergi fyrir í mati faghópa né í niðurstöðum verkefnisstjórnar um einstaka kosti. Hvergi er í matinu horft til hagsmuna sem byggja á nýtingu orkunnar. Það á t.d. við um atvinnuuppbyggingu í anda atvinnustefnu stjórnvalda og orkuskiptin almennt.

Höfundur er lögfræðingur Samorku.




Skoðun

Sjá meira


×