Guðlaugur: Þurfti að dreifa álaginu Ellert Scheving skrifar 2. júní 2010 23:11 Úr leik Fram og ÍR. Mynd/Valli
Guðlaugur Baldursson var nokkuð sáttur með spilamennsku sinna manna í kvöld og sýndi varamönnum liðsins mikið traust þegar hann gerði sjö breytingar á byrjunarliði ÍR í kvöld. Liðið tapaði þó fyrir Fram, 2-1, í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar. „Ég er kannski ekki með hugann við Fjarðarbyggð en ég varð auðvitað að taka tillit til þess að við erum að spila þrjá leiki í þessari viku svo við urðum að dreifa álaginu," sagði Guðlaugur. „Ég þurfti að breyta svolítið núna og ég treysti þeim sem fyrir utan eru alveg til að taka þátt í þessu og þeir sönnuðu það að þeir eru traustsins verðir og stóðu sig gríðarlega vel í kvöld." Fram sýndi á köflum mikla yfirburði í kvöld en Guðlaugi fannst sínir menn alveg standast þeim snúning. „Við áttum í erfiðleikum með þá í föstum leikatriðum en í opnum leik fannst mér við alveg standast þeim snúning. Auðvitað voru þeir meira með boltann eins og von var á. Fram er eitt af fjórum bestu liðum landsins og við erum í 1.deild og gerðum okkur grein fyrir því að við myndum eitthvað liggja til baka og vera minna með boltann. En mér fannst við loka á þeirra hættulegustu atriði fyrir utan föstu leikatriðin. „Ég var þó ekki alveg nógu ánægður hvernig við vörðumst þeim en við hefðum alveg getað skorað fleiri mörk í seinni háfleik. Við fórum að þora að spila boltann þegar við erum komnir tveimur mörkum undir og þá virðist þessi pressa fara af leikmönnum og eftir það fannst mér við vera líklegir."
Íslenski boltinn Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Gerði sínu gamla liði mikinn grikk Leik lokið: ÍBV – Keflavík 6-1 | Flugeldasýning í fyrsta sigri Eyjamanna Grótta í toppbaráttu, Ægir vann aftur og Vestri fagnaði í Breiðholti Öll mörkin: Sjáðu þrennu varamannsins og sturlunina á Akureyri Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings