Steve Nash eignaðist barn og tilkynnti um skilnað á sama deginum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. nóvember 2010 14:15 Steve Nash með dætur sínar. Mynd/AP
Steve Nash og kona hans Alejandra Nash eignuðust sitt annað barn um helgina en það kom flatt upp á marga að um leið tilkynnti þessi snjalli leikstjórnandi Phoenix Suns að hjónin væru að skilja eftir fimm ára hjónbarn. Alejandra og Steve eiga saman sex ára tvíburadætur, Lola og Bellu, en eignuðust soninn Matteo Joel Nash á föstudaginn. Þau hafa víst búið í sitthvoru húsinu undanfarna mánuði. „Ég þakklátur og spenntur yfir því að hafa eignast soninn, Matteo Nash. Alejandra og barninu líður vel en þetta er súrsæt stund fyrir mig og konuna mína því við erum að skilja eftir fimm ára hjónaband," sagði Steve Nash í tilkynningu sem birt var í Life & Style blaðinu. Steve Nash sagði að hann og verðandi fyrrverandi kona hans ætli að gera allt til þess að börnin fái tækifæri til að vaxa og dafna og njóta ástar þeirra beggja á meðan fjölskyldan fer í gegnum þessa erfiðu tíma. Steve Nash hefur átt tvo mjög góða leiki eftir að sonuruinn kom í heiminn. Hann var með 28 stig og 14 stoðsendingar í sigri á Sacramento og fylgdi því eftir með að skora 21 stig og gefa 13 stoðsendingar í sigri á NBA-meisturum Los Angeles á þeirra eigin heimavelli. Nash hitti úr 19 af 29 skotum sínum í þessum tveimur leikjum og tapaði aðeins 2 boltum.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira