Guðlaugur Victor: Draumur að rætast Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Edinborg skrifar 11. október 2010 22:29 „
Tilfinningin er alveg ótrúleg og það var draumur að rætast hér í kvöld,“ sagði Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður Liverpool, eftir sigur Íslands á Skotum. Með sigrinum tryggði Ísland sér sæti í úrslitakeppni EM í flokki U-21 liða. „Þetta var frábær leikur. Fyrri hálfleikur var reyndar ekki alveg eins og Eyjólfur vildi en við fórum inn í seinni hálfleikinn og stóðum vel fyrir okkar.“ „Svo komu þessi ótrúlegu mörk frá Gylfa. Þessi drengur er bara ekki mennskur,“ bætti hann við. „En það sást í kvöld að liðið er gott. Við fengum að vísu mark á okkur sem var einskær óheppni og Arnar Darri veit vel sjálfur að hann getur gert mun betur. En það skiptir ekki máli núna, við unnum leikinn.“ Guðlaugur Victor kom inn í hálfleik eftir slakan fyrri hálfleik. Íslenska liðinu gekk mun betur í þeim síðari. „Eyjólfur sagði mér að koma inn og setja pressu á kantmanninn þeirra. Mér fannst það ganga ágætlega og við leyfðum þeim ekki að spila eins mikið og í fyrri hálfleik.“ „En það eru úrslitin sem skipta öllu máli og nú erum við á leiðinni á EM í Danmörku árið 2011. Þetta var algjörlega frábært og ég er orðlaus yfir árangrinum.“
Íslenski boltinn Mest lesið Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Handbolti Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist Fótbolti Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Fótbolti Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Vildi tapa legg: „Mesti hávaði sem ég hef heyrt“ Sport Missti alveg stjórn á skapinu en það skilaði sigri Körfubolti Salah færði Egyptum draumabyrjun Fótbolti Sagði látna systur sína hafa tryggt sigurinn ótrúlega Sport Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Fleiri fréttir Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Sjá meira