Jafntefli nægði Liverpool til þess að komast áfram í 32 liða úrslitin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. desember 2010 19:52 Milan Jovanovic fagnar hér marki sínu. Mynd/AP
Liverpool gerði 1-1 jafntefli á móti Steaua Búkarest í K-riðli Evrópudeildarinnar í Rúmeníu í dag og þetta eina stig nægði til þess að tryggja Liverpool-mönnum sæti í 32 liða úrslitum keppninnar þótt að einn leikur sé eftir. Liverpool er líka búið að tryggja sér sigur í riðlinum en liðið hefur enn ekki tapað leik í keppninni. Spænski markvörðurinn Jose Reina, bar fyrirliðabandið í forföllum Steven Gerrard og Jamie Carragher en hann gerði sig seka um slæm mistök sem kostaði Liverpool-liðið sigurinn. Það kom þó ekki að sök því hinn leikur riðilsins endaði einnig með jafntefli. Milan Jovanovic kom Liverpool í 1-0 á 19. mínútu þegar hann skallaði laglega fyrirgjöf frá Ryan Babel í markið. Rúmenarnir sóttu í sig veðrið eftir því sem leið á leikinn og þeir áttu skilið að jafna leikinn þótt að jöfnunarmarkið hafi verið klaufalegt að hálfu Reina í markinu. Brasilíumaðurinn Eder Bonfim skoraði jöfnunarmarkið með skalla á 61. mínútu en boltinn lak þá í gegnum klofið á Jose Reina. Edinson Cavani skoraði þrennu fyrir Napoli í 3-3 jafntefli á útivelli á móti Utrecht en hollenska liðið komst í 3-1 í leiknum eftir að Cavani hafði skorað fyrsta mark leiksins. Liverpool er því með 9 stig eftir fimm leiki, þrjú meira en Steaua og fimm stigum meira en Napoli og Utrecht sem geta ekki náð Liverpool. Liverpool er einnig búið að tryggja sér sigur í riðlinum því liðið er með betri innbyrðisárangur á móti rúmenska liðinu.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Fleiri fréttir Sara Björk snýr heim í Hauka FIFA tók U-beygju og bannar vatnsflöskur „Eins og fjölskylda í sólarlandaferð“ Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri „Þetta voru ótrúlegir dagar, en líka alveg magnaðir dagar“ „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Jelena kölluð inn í landsliðið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Sjá meira