16 ára liðið Norðurlandameistari eftir stórsigur á Svíum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. maí 2010 13:00 Norðurlandameistararnir. Mynd/Heimasíða KKÍ
Íslenska 16 ára landslið karla í körfubolta er Norðurlandameistari eftir 28 stiga stórsigur á Svíum, 82-54, í úrslitaleik á Norðurlandamótinu sem fór fram í Solna í Svíþjóð. Íslenska liðið átti frábæran leik í úrslitaleiknum og heimamenn áttu aldrei möguleika gegn samstilltu og vel spilandi íslensku liðið. Ísland vann leik liðanna í riðlinum með 4 stigum en frábær frammistaða strákanna sá til þess að úrslitaleikurinn var aldrei spennandi. Valur Orri Valsson skoraði 22 stig og gaf 5 stoðsendingar hjá íslenska liðinu, Martin Hermannsson var með 21 stig, Maciej Baginski gerði 15 stig og Matthías Orri Sigurðarson skoraði 14 stig. Íslenska liðið breytti stöðunni úr 16-13 í 31-17 í fyrsta leikhluta, komst mest í 20 stiga forustu í öðrum leikhluta (46-26) og var 9 stigum yfir í hálfleik, 48-39. Íslenska liðið vann síðan þriðja leikhlutann 16-8 og landaði öruggum sigri í lokaleikhlutanum. Íslenska liðið vann alla fimm leiki sína á mótinu þarf af hafði liðið líka unnið stórsigra á bæði Finnum og Norðmönnum. Einar Árni Jóhannsson er þjálfari íslenska liðsins og er þetta í annað skiptið sem hann gerir landslið að Norðurlandameisturum. 18 ára landsliðið varð Norðurlandameistari undir hans stjórn árið 2004.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Enski boltinn LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Körfubolti Veðjar öllum ágóðanum af bardaga sínum á sigur Tysons Sport Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Benni og Drungilas mæta á gamla heimavöllinn Sport Fleiri fréttir Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Bætti eigið aldursmet í NBA deildinni um fimm ár Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 90-88 | Andrew Jones hetja heimamanna „Mér sýndist ljósin vera komin og flautan líka“ „Maður er að kaupa notaða bíla og það eru bílasalar að bjóða manni bíla“ Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 87-80 | Stjörnumenn aftur á toppinn Uppgjörið: Keflavík-Haukar 117-85 | Létt hjá Kanalausum Keflvíkingum Uppgjörið: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Caitlin Clark nálægt því að skjóta niður áhorfendur á golfmóti „Við þurfum að fara að vinna leiki“ Tveir með fimmtíu stiga leik í nótt Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Tryggvi og Elvar báðir kátir eftir kvöldið Popovich fékk heilablóðfall Höttur ekki lengi að finna mann í stað McCauley Leikmenn í Bónusdeildinni sem útvarpsmenn á FM957 og X977 Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Hattarmenn senda Kanann heim Ísak hættur með ÍR Heilsan ástæða þess að Árni lætur af störfum Betur fór en á horfðist hjá Martin sem virtist illa meiddur „Hef meiri áhyggjur af þessu með Kára“ Kallaði Giannis barn eftir að hann neitaði að taka í höndina á honum Teitur spilaði með manni sem dekkaði Jordan og drakk kippu af bjór fyrir æfingar Körfuboltakvöld: Tilþrif 6. umferðar Uppgjörið: Ísland - Rúmenía 77-73 | Fyrsti sigur íslenska liðsins í tvö ár Sjá meira