Brenton spurningamerki fyrir leikinn á móti KR í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. febrúar 2010 15:45 Brenton Birmingham hefur glímt við meiðsli stærsta hluta þessa tímabils. Mynd/Vilhelm
Brenton Birmingham er tæpur fyrir stórleik Grindavíkur og KR í Iceland Express deild karla í kvöld en leikurinn hefst klukkan 19.15 í Röstinni í Grindavík. Samkvæmt frétt á heimasíðu Grindvíkinga þá er Brenton að glíma við meiðsli á læri eftir að hafa fengið högg framan á lærið í síðasta leik á móti Njarðvík. KR-ingar eru á toppnum í Iceland Express deildinni og mæta með landsliðsleikstjórnandann Pavel Ermolinski til Grindavíkur í kvöld. „Brenton er spurningarmerki en hann fékk högg á lærið í frábærum sigri okkar manna á móti Njarðvík um daginn. Hann er búinn að jafna sig af gömlu meiðslunum sem voru að mestu, aftan í lærinu en er búinn að vera aumur í lærinu framanverðu eftir höggið sem hann fékk. Vonandi mun Brenton spila með en heill er hann ennþá einn af betri leikmönnum deildarinnar," segir á heimasíðu Grindavíkur. Brenton hefur skorað 12,8 stig, tekið 4,5 fráköst, gefið 3,7 stoðsendingar og stolið 2,8 boltum að meðaltali í þeim tólf leikjum sem hann hefur spilað með Grindavík í deildinni á tímabilinu. Brenton var bæði stigahæstur (21) og stoðsendingahæstur (7) þegar Grindavík mætti KR fyrr á tímabilinu en KR vann þann leik með tveimur stigum, 84-82, eftir mikla spennu. Grindvíkingar gleðjast þó yfir því að Þorleifur Ólafsson verður með í kvöld en hann var með 20 stig og 8 fráköst í fyrri leik Grindavíkur og KR í vetur.
Dominos-deild karla Mest lesið Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Íslenski boltinn „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Handbolti „Varnarleikurinn var skelfilegur” Handbolti Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Handbolti Virtist ætla að vaða í samherja sinn Fótbolti Dortmund kom til baka á meðan AC Milan og Chelsea unnu örugga sigra Fótbolti FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ Handbolti Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Körfubolti Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Ísak Bergmann kom Düsseldorf til bjargar Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Sjá meira