FH komst í gær í úrslitaleik VISA-bikarkeppni karla með 3-1 sigri á 2. deildarliðs Víkinga frá Ólafsvík.
Mikil stemning var í Kaplakrika í gær en fjölmargir Ólafsvíkingar mættu á völlinn og studdu sína menn sem börðust hetjulega gegn Íslandsmeisturunum.
Daníel Rúnarsson ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins var á staðnum og má sjá myndir hans hér fyrir neðan.