NBA: Boston vann Miami í fyrsta leik LeBron með Miami Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. október 2010 09:00 Chris Bosh, Dwyane Wade (3) og LeBron James (6). Mynd/AP
Nýja ofurþríeykið í Miami Heat byrjaði ekki vel í nótt þegar liðið tapaði 88-80 fyrir Boston Celtics í opnunarleik NBA-deildarinnar í körfubolta. LeBron James lék þarna sinn fyrsta alvöru leik með Miami-liðinu eftir að hann yfirgaf Cleveland. LeBron James var með 31 stig í leiknum en fékk litla hjálp frá hinum tveimur úr ofurþríeykinu, Dwyane Wade og Chris Bosh. Wade var með 13 stig, klikkaði á 12 af 16 skotum sínum og tapaði 6 boltum en Bosh var með 8 stig og 8 fráköst. Ray Allen skoraði 20 stig fyrir Boston, Paul Pierce var með 19 stig og Kevin Garnett bætti við 10 stigum og 10 fráköstum. Boston-liðið gaf tóninn strax í byrjun, vann fyrsta leikhluta 16-9 og var 45-30 yfir í hálfleik. Rajon Rondo átti þátt í öllum sjö körfum Boston í fyrsta leikhlutanum og endaði leikinn með 17 stoðsendingar og 4 stig.Kobe Bryant var með 27 stig og 7 stoðsendingar þegar meistararnir í Los Angeles Lakers unnu 112-110 sigur á Houston Rockets en mikilvægustu körfuna í lokin skoraði nýi maður liðsins, Steve Blake. Pau Gasol var með 29 stig og 11 fráköst og Lamar Odom var mðe 14 stig og 10 fráköst en hjá Houston var Kevin Martin með 26 stig og Aaron Brooks skoraði 24 stig og gaf 9 stoðsendingar. Yao Ming lék í 23 mínútur og 21 sekúndur, skoraði 9 stig og tók 11 fráköst.Nicolas Batum skoraði 19 stig þegar Portland Trail Blazers vann 106-92 heimasigur á Phoenix Suns en Brandon Roy var stigahæstur með 24 stig. Steve Nash var með 26 stig hjá Phoenix. Úrslit næturinnar í NBA-deildinni í körfubolta: Boston Celtics-Miami Heat 88-80 Portland Trail Blazers-Phoenix Suns 106-92 Los Angeles Lakers-Houston Rockets 112-110
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira