NBA: New York Knicks endaði 13 leikja sigurgöngu Dallas Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. mars 2010 11:00 Wilson Chandler er hér um það bil að verja skot frá Caron Butler í sigri New York Knicks á Dallas í nótt. Mynd/AP
New York Knicks vann 128-94 sigur á Dallas Mavericks í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og endaði með því þrettán leikja sigurgöngu Dallas-liðsins. Dallas var á heimavelli og hafði unnið New York með 50 stiga mun fyrr á tímabilinu.Bill Walker skoraði 23 stig og Wilson Chandler var með 22 stig fyrir New York sem hafði tapað 9 leikjum í röð í Dallas. Dirk Nowitzki var með 20 stig og 12 fráköst fyrir Dallas í fyrsta tapi liðsins síðan 16. febrúar.Dwight Howard var með 28 stig og 15 fráköst þegar Orlando Magic vann sinn áttunda leik í röð. Þetta er lengsta sigurganga Orlando síðan í apríl 2006.George Hill var með 14 stig og 11 stoðsendingar þegar San Antonio Spurs vann 118-88 sigur á Los Angeles Clippers. Matt Bonner hitti úr 8 af 9 skotum sínum og skoraði 21 stig og Richard Jefferson var með 18 stig og 9 fráköst fyri Spurs sem er búið að vinna 6 af síðustu 7 leikjum sínum.Luis Scola setti nýtt persónulegt met með því að skora 44 stig fyrir Houston Rockets semvann 116-108 sigur á New Jersey Nets. Argentínumaðurinn tók einnig 12 fráköst en hann hitti úr 20 af 25 skotum sínum í leiknum.Nýliðinn Stephen Curry var með 35 stig og 10 stoðsendingar þegar Golden State Warriors vann 124-112 sigur á Toronto Raptors. Félagi Curry í bakvarðarsveit Warriors, Monta Ellis, skoraði 31 stig í sínum öðrum leik sínum eftir bakmeiðsli. Jose Calderon var með 24 stig og 12 stoðsendingar fyrir Toronto sem tapaði sínum fjórða leik í röð og í áttunda sinn í síðustu 9 leikjum.J.R. Smith var með 19 af 30 stigum sínum í seinni hálfleik þegar Denver Nuggets vann 125-108 sigur á Memphis Grizzlies en Smith hitti úr 7 af 10 þriggja stiga skotum sínum í leiknum.Joe Johnson skoraði 26 stig þegar Atlanta Hawks vann 112-99 sigur á Detroit Pistons.Úrslit leikjanna í NBA-deildinni í nótt: Atlanta Hawks-Detroit Pistons 112-99 Washington Wizards-Orlando Magic 95-109 Memphis Grizzlies-Denver Nuggets 108-125 Dallas Mavericks-New York Knicks 94-128 Houston Rockets-New Jersey Nets 116-108 San Antonio Spurs-Los Angeles Clippers 118-88 Golden State Warriors-Toronto Raptors 124-112
NBA Mest lesið PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira