Guðjón Skúlason: Mikið afrek að koma hingað og vinna tvisvar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. apríl 2010 22:46 Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur. Mynd/Vilhelm
Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur, var kátur eftir að hans menn slógu nágrannana í Njarðvík út úr úrslitakeppninni með 89-83 sigri í Ljónagryfjunni í kvöld. Keflavík vann þar með undanúrslitaeinvígi liðanna 3-1 og er komið í lokaúrslitin á móti annaðhvort KR eða Snæfell. „Það er meiriháttar afrek að slá út Njarðvík og sérstaklega að vinna þá tvisvar hérna inn í Njarðvík. Þetta er rosalegur heimavöllur og þeir eru með gott og vel þjálfað lið. Það er því mikið afrek að koma hingað og vinna tvisvar," sagði Guðjón Skúlason í viðtali við Guðjón Guðmundsson, í útsendingu Stöð 2 Sport. Draelon Burns innsiglaði sigur Keflavíkur með þriggja stiga körfu af Njarðvíkurmerkinu eða langt fyrir utan, þegar 20 sekúndur voru eftir af leiknum. „Svona boltar slökkva oft í leikjum og þessi karfa hans kom á frábærum tíma," sagði Guðjón. „Ég er svo stoltur af mínum mönnum því við héldum áfram allan leikinn og spiluðum hörkuvörn. Við vorum líka að leysa sóknarlega hluti sem við vorum í vandræðum með síðast. Ég er mjög ánægður og stoltur af mínu liði," sagði Guðjón en er hann með lið sem getur farið alla leið. „Algjörlega. Ég er komin í úrslitin og nú er bara að fara alla leið. Ég er sannarlega með lið sem getur farið alla leið. Það er bara að halda mönnum við efnið," sagði Guðjón að lokum í viðtali við nafna sinn eftir leikinn í kvöld.
Dominos-deild karla Mest lesið Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Það verða tónleikar í hálfleik á úrslitum HM félagsliða Sport Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Enski boltinn Messi slær enn eitt metið Fótbolti Konate gæti farið frítt frá Liverpool Sport HM félagsliða „farsælasta keppni í heimi“ samkvæmt Infantino Sport „Við erum klárlega að fara í alvöru slagsmál“ Íslenski boltinn Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Enski boltinn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Enski boltinn Dagskráin í dag: KA fer í Hafnarfjörðinn og golfið heldur áfram Sport Fleiri fréttir Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn Sjá meira