Aron markahæstur þegar Kiel vann þýska bikarinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. maí 2011 13:27 Aron Pálmarsson. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Aron Pálmarsson átti mjög góðan leik þegar hann og félagar hans í Kiel urðu þýskir bikarmeistarar eftir sex marka sigur á Flensburg-Handewitt, 30-24, í bikarúrslitaleiknum í Hamburg. Alfreð Gíslason gerði því Kiel að bikarmeisturum í annað skiptið á þremur árum. Aron var markahæstur í liði Kiel ásamt þeim Christian Zeitz og Filip Jicha en allir gerðu þeir sex mörk. Aron fékk sæti í byrjunarliðinu eftir góða frammistöðu í undanúrslitaleiknum í gær og nýtti það afar vel. Aron hefur nú náð að vinna alla þrjá stóru titlana á fyrstu tveimur árum sínum með Kiel. Þetta er í sjöunda skipti sem Kiel verður þýskur bikarmeistari en félagið var nú að vinna bikarinn í fjórða sinn á fimm árum. Alfreð Gíslason hefur nú unnið titil á hverju ári síðan að hann tók við Kiel sem er frábær árangur. Flensburg var með frumkvæðið í upphafi leiks en tvö mörk á 46 sekúndum frá Filip Jicha komu Kiel yfir í 5-3. Aron Pálmarsson skoraði síðan fjögur mörk Kiel í röð þegar liðið breytti stöðunni úr 5-4 í 9-6 og var eftir það með ágætt tak á leiknum. Kiel náði mest fjögurra marka forskoti í fyrri hálfleiknum en var 16-13 yfir í hálfleik. Aron var markahæstur hjá Kiel í hálfleik með 4 mörk en Dominik Klein var þá kominn með 3 mörk. Kiel landaði síðan öruggum og sannfærandi sigri í seinni hálfleiknum og það er í raun ótrúlegt að Flensburg-liðið hafi náð að slá út Rhein-Neckar Löwen í undanúrslitunum í gær. Aron bætti við tveimur mörkum í seinni hálfleik og fékk síðan nokkur dauðafæri til viðbótar þegar leikurinn var unninn en tókst ekki að bæta við mörkum.
Þýski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira