Þóra B. Helgadóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir höfðu betur gegn þremur löndum sínum í Djurgarden í sænska fótboltanum í kvöld.
Lið þeirra Þóru og Söru, Malmö, vann öruggan 4-0 sigur á Djurgarden. Guðbjörg Gunnarsdóttir stóð á milli stanganna hjá Djurgarden og þær Katrín Jónsdóttir og Dóra María Lárusdóttir voru báðar í byrjunarliðinu.
Sara Björk lék á miðjunni að þessu sinni með Malmö en hún hefur verið að leika í framlínunni í fyrstu leikjunum.
Malmö er á toppnum í deildinni.
Malmö vann í Íslendingaslag
Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Mest lesið



Stjarnan staðfestir komu Caulker
Íslenski boltinn


Gæti orðið dýrastur í sögu KR
Íslenski boltinn




Kerkez orðinn leikmaður Liverpool
Enski boltinn

Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“
Íslenski boltinn