Innlent

Björgunarsveitir hafa þurft frá að hverfa

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austurlandi hafa verið að störfum í nótt og í morgun vegna eldgossins í Grímsvötnum. Björgunarsveitamenn hafa dreift grímum og gleraugum á meðal íbúa á öskufallssvæðinu og aðstoðað bændur við að koma lambfé í hús.

Nokkur verkefni liggja fyrir en vegna myrkurs af völdum öskufallsins er lítið hægt að athafna sig og hafa björgunarsveitir þurft frá að hverfa. Verkefnin sem fyrir liggja felast aðallega í aðstoð við bændur.

Aðgerðastjórnir eru að störfum á Hellu, Kirkjubæjarklaustri og á Höfn.

Aukafréttatími verður á Stöð 2 á slaginu klukkan tólf á hádegi vegna eldgossins.

Myndskeiðið sem fylgir þessari frétt tók Egill Aðalsteinsson, myndatökumaður Stöðvar 2, þegar flogið var yfir gosstöðvarnar með fulltrúa helstu viðbragðsaðila í gærkvöldi.


Tengdar fréttir

Öllu flugi innanlands aflýst

Allt flug Flugfélagsins Ernis fellur niður í dag vegna eldgossins í Grímsvötnum. Fara átti tvær ferðir til Eyja, og eina á Höfn, Bíldudal og Sauðárkrók. Með félaginu áttu bókað úm 150 manns, að fram kemur í tilkynningu.

Sjáðu myndirnar - eldgos í Grimsvötnum

Visi hefur borist fjölda mynda af eldgosinu í Grímsvötnum. Það er með ólíkindum að sjá breytingarnar á meðfylgjandi myndum sem Friðrik Páll Friðriksson ljósmyndari tók á Fosshótelum í Skaftafelli. Fyrri myndin er tekin 21. maí klukkan 20:20 og síðari 22. maí, snemma morguns klukkan 07:03. Þá má einnig sjá myndir eftir Vilhelm Gunnarsson ljósmyndara, Egil Aðalsteinsson kvikmyndatökumann, Magnús Kristinsson frá Nónvörðu í Keflavík og íbúa í Vatnsendahverfi.

Gosið sást greinilega frá Reykjavík

Gosið úr Grímsvötnum sást greinilega víða á landinu í gærkvöld. Meðal annars í Reykjavík. Sveinn Þorsteinsson, lesandi Vísis, var staddur í Öskjuhlíð í gærkvöld og tók þá þessa mynd af gosmekkinum.

Almannavarnir hafa mestar áhyggjur af öskufallinu

"Við höfum þessa bitru reynslu úr Eyjafjallajökli hvernig þetta getur verið og staðið jafnvel lengi yfir og haft mikil áhrif á fólkið,“ segir Víðir Reynisson, deildarstjóri hjá almannavörnum. Hann segir mikið öskufall vera í kringum Kirkjubæjarklaustur, bæði vestur út á Mýrdalssand og austur á Skeiðarársand. Þjóðveginum er lokað frá Kirkjubæjarklaustri að Freysnesi.

Keflavíkurflugvelli lokað klukkan hálfníu

Keflavíkurflugvelli verður lokað kl. 08:30. Sú lokun er byggð á spá frá bresku veðurstofunni. Þetta segir í tilkynningu frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra.

Kraftur gossins svipaður

"Það gæti verið að það sé hægt að draga úr kraftinum en þetta er svipað. Hann er sennilega ekki að aukast,“ segir Einar Kjartansson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofunni, um eldgosið í Grímsvötnum sem hófst í gær. Óvíst er hvort gosið komi til með að valda hlaupi.

Keflavíkurflugvöllur opinn til sjö

Keflavíkurflugvöllur verður opinn fram til klukkan sjö og þá verður staðan metin að nýju. Sama gildir um innanlandsflug. Staðan fyrir daginn verður svo metin aftur eftir það. Þetta kemur fram í stöðuskýrslu sem almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra sendi frá sér nú í nótt. Eldgos hófst í Grímsvötnum um klukkan sjö í gærkvöld og var samhæfingamiðstöðin í Skógarhlíð samstundis virkjuð vegna hennar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×