Selfoss minnkaði forskot ÍA í níu stig - tveir sigrar í röð hjá Leikni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. júlí 2011 22:08 Jón Daði Böðvarsson skoraði tvö mörk í kvöld. Mynd/Stefán
Selfyssingar unnu 4-0 sigur á Gróttu í 1. deild karla í fótbolta í kvöld, minnkuðu forskot Skagamanna í níu stig og náðu ennfremur átta stiga forskoti á liðin í 3. og 4. sæti. Leiknismenn bættu stöðu sína í botnbaráttunni með því að vinna 3-0 útisigur á HK og komast upp úr fallsæti. Jón Daði Böðvarsson skoraði tvö mörk og þeir Viðar Örn Kjartansson og Babacar Sarr skoruðu eitt mark hvor þegar Selfoss vann 4-0 sigur á Gróttu. Selfoss var komið í 3-0 í hálfleik. Sefloss hefur nú 28 stig í 2. sæti deildarinnar en Haukar og Þróttur eru með 20 stig í næstu sætum á eftir. Ólafur Hrannar Kristjánsson skoraði tvö mörk og Pape Mamadou Faye var með eitt mark í 3-0 útisigri Leikni á HK í Kópavogi. Zoran Miljkovic er greinilega að gera góða hluti með Breiðhyltinga því liðið hefur unnið tvo síðustu leiki sína og þessi sex stig hafa komið liðinu upp úr fallsæti. HK er nú eitt á botninum með aðeins fimm stig en KA og Leiknir hafa bæði tíu stig. Leiknir er hinsvegar með betri markatölu og KA-menn verða því að sætta sig við það að setja í fallsæti.Úrslit í 1. deild karla í kvöld:Selfoss-Grótta 4-0 1-0 Viðar Örn Kjartansson (12.), 2-0 Babacar Sarr (18.), Jón Daði Böðvarsson (44.), 4-0 Jón Daði Böðvarsson (60.) HK-Leiknir 0-3 0-1 Pape Mamadou Faye (39.), 0-2 Ólafur Hrannar Kristjánsson (50.), 0-3 Ólafur Hrannar Kristjánsson (67.)
Íslenski boltinn Mest lesið Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Fótbolti Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Er hægt að stöðva Víkingana? Sport Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Íslenski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Fleiri fréttir Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Gerði sínu gamla liði mikinn grikk Leik lokið: ÍBV – Keflavík 6-1 | Flugeldasýning í fyrsta sigri Eyjamanna Grótta í toppbaráttu, Ægir vann aftur og Vestri fagnaði í Breiðholti Öll mörkin: Sjáðu þrennu varamannsins og sturlunina á Akureyri Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings