Eggert Gunnþór Jónsson og félagar í skoska liðinu Hearts drógust gegn Tottenham í lokaumferð forkeppni Evrópudeildar UEFA í morgun.
AEK Aþena, lið Eiðs Smára Guðjohnsen, drógst gegn Dinamo Tbilisi frá Georgíu sem sló KR-inga úr leik í síðustu umferð sem lauk í gærkvöldi.
Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í AZ Alkmaar frá Hollandi mæta norska liðinu Álasund.
CD Nacional, sem sló FH úr leik fyrr í sumar, mætir Birmingham frá Englandi og Rosenborg, sem vann Breiðablik í forkeppni Meistaradeildarinnar, leikur gegn AEK Larnaca frá Kýpur.
Fulham mætir úkraínska liðinu Dnipro og Stoke drógst gegn svissneska liðinu Thun. Meðal annarra viðureigna má nefna rimmu Hannover 96 og Sevilla.
Alls voru 76 lið í pottinum í dag og sigurvegarar viðureignanna 38 komast áfram í sjálfa riðlakeppnina, ásamt tíu liðum sem tapa sínum viðureignum í lokaumferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu, en dregið var í hana í morgun.
Leikirnir fara fram dagana 18. og 25. ágúst næstkomandi.
Leikirnir:
Maccabi Tel Aviv - Panathinaikos
Atletico Madrid - Vitoria SC
Shamrock Rovers - Partizan Belgrad
Metalist Kharkov - Sochaux
Besiktast - Alania
Rosenborg - AEK Larnaca
Vorskia - Dinamo Búkarest
Bursaspor - Anderlecht
Roma - Slovan Bratislava
Olympiakos - Paris St. Germain
Legia Varsjá - Spartak Moskva
Ekranas Kaunas - Hapoel Tel Aviv
PAOK - Karpaty
Trabzonspor - Athletic Bilbao
Hearts - Tottenham
Maribor - Glasgow Rangers
Steaua Búkarest - CSKA Sofia
Nordsjælland - Sporting Lissabon
Dnipro - Fulham
Lokomotiv Moskva - Spartak Trnava
Sion - Celtic
Slask - Rapíd Búkarest
Litex - Dynamo Kiev
Lazio - Rabotnicki
CD Nacional - Birmingham
PSV - Ried
Thun - Stoke
Álasund - AZ Alkmaar
Vaslui - Sparta Prag
Omonia - Salzburg
Zestafoni - Club Brugge
Hannover - Sevilla
HJK Helsinki - Schalke
Dinamo Tbilisi - AEK Aþena
Rennes - Crvena zvezda
Gaz Metan - Austria Vín
Braga - Young Boys
Standard Liege - Helsingborg

