Samskiptavefurinn Facebook stækkar og stækkar með hverjum deginum og fékk í sumar yfir trilljón síðuflettingar í einum og sama mánuðinum, samkvæmt tímaritnu Techland.
Þetta eru engar smá tölur sem er verið að tala hér um en ein trilljón eru þúsund milljarðar. Í júní síðastliðnum braut Facebook í fyrsta skipti þennan stóra múr en það gerðu um 870 milljón notendur eða 47 prósent allra notenda á internetinu í mánuðinum.
Í tímaritinu er bent á það að einungis 750 milljón manns eru skráðir með aðgang á Facebook en þessi mismunur er talinn stafa af því að margir skoða Facebook án þess að skrá sig inn eða í gegnum aðrar samskiptasíður.
Sú heimasíða sem var næst vinsælust í júnímánuði var myndbandasíðan Youtube, sem var einungis með einn tíunda af síðuflettingum Facebook. Þó voru um 43 prósent notenda á internetinu sem fóru á youtube í mánuðinum.
Þá segir í tímaritinu að þegar tæknirisinn google gerir nýja samskiptavefinn sinn, google plús, opinn öllum notendum - munu þeir ekki vera lengi að sigla fram úr facebook hvað síðuflettingar varðar.
Facebook með yfir þúsund milljarða flettinga í einum mánuði

Mest lesið


Síðasti dropinn á sögulegri stöð
Viðskipti innlent

Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu
Viðskipti innlent

Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi
Viðskipti innlent

Ofurtollarnir lækkaðir tímabundið
Viðskipti erlent



Ríkið eignast hlut í Norwegian
Viðskipti erlent

Svandís tekur við Fastus lausnum
Viðskipti innlent
