Knattspyrnusamband Íslands ætlar að halda upp á 30 ára afmæli fyrsta kvennalandsleiks Íslands með því að bjóða öllum A-landsliðskonum Íslands frá upphafi á tvo landsleiki sem fara fram í undankeppni EM kvenna á næstunni.
Þann 20. september næstkomandi eru liðin 30 ár frá fyrsta kvennalandsleik Íslands sem var á móti Skotlandi í Kilmarnock. Skotar unnu leikinn 3-2.
KSÍ býður öllum A-landsliðskonum Íslands frá upphafi á bæði landsleik Íslands og Noregs 17. september næstkomandi og á leik Íslands og Belgíu 21. september. Báðir leikirnir eru í undankeppni EM 2013, en úrslitakeppnin fer fram í Svíþjóð.
KSÍ gaf það út á heimasíðu sinni í dag að þær landsliðskonur sem vilja þiggja miða, á umrædda leiki við Norðmenn og Belga, eru beðnar um að senda tölvupóst á Klöru Bjartmarz (klara@ksi.is).
Margt um að vera í afmælismánuðinum. A landsliðið leikur tvo leiki, gegn Noregi og Belgíu, og einnig fer fram riðill í undankeppni EM U19 kvenna hér á landi í september þar sem leikið verður í Reykjavík og nágrenni.
KSÍ býður öllum A-landsliðskonum Íslands frá upphafi á tvo landsleiki
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið
Fleiri fréttir
